Aðeins innskráðir nemendur geta skráð sig í nám.
Opna allt
Búvísindi
Búvísindi
Búvísindi eru kennd við Landbúnaðarháskóla Íslands. Nemendur geta valið um nám í búvísindum, náttúru- og umhverfisfræðum, skógfræðum og landgræðslu og umhverfisskipuli. Boðið er upp á ýmsar námsleiðir en búfræðinám til BS-prófs tekur þrjú ár. Meðal kennslugreina má nefna jarðvegsfræði, tilraunafræði, fóðurfræði, ræktun búfjár, erfðafræði, tilraunafræði, tölvustudd hönnun, stjórnun búrekstrar. Búfræðingur getur m.a. unnið við landbúnaðarstörf eða stundað rannsóknir og kennslu.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Félagsvísindi
Bókasafnsfræði
Bókasafns- og upplýsingafræði er kennd við Háskóla Íslands. Námið felst í því að byggja upp skilning og þekkingu á eðli og einkennum alls kyns upplýsinga, ásamt því að skipuleggja geymslu þeirra og miðlun. Í mjög svo hröðum framförum á sviði tölvutækni hefur greinin tekið örum breytingum undanfarin ár. Meðal námsgreina eru upplýsingasamfélagið, vinnulag í bókasafns- og upplýsingafræði, upplýsingaleiðir, aðferðafræði, skjalastjórn, upplýsingaþjónusta við atvinnulífið, varðveisla og viðgerðir og hönnun og gerð gagnasafna. Starfsmöguleikar felast m.a. í störfum á bókasöfnum, skipulagingu og þjónustu við skjalasöfn, bæði hjá hinu opinbera og hjá einkafyrirtækjum.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Félagsfræði
Félagsfræði er kennd við Háskóla Íslands. Meginviðfangsefni félagsfræðinnar er að varpa ljósi á síbreytilegt nútímasamfélagið, fjölskylduna og hlutverk hennar, stjórnmál og fjölmiðla svo dæmi séu tekin. Öflun og meðferð upplýsinga, svo sem með skoðanakönnunum, er ríkur þáttur í félagsfræðinámi. Meðal námsgreina eru rannsóknaraðferðir og gagnasöfnun, þjóðfélagskenningar, afbrotafræði, atvinnulífsfræði og fjölmiðlafræði. Félagsfræðingar starfa m.a. við fræðslu, opinbera stjórnsýslu, félagsþjónstu, tómstunda- menningar- og íþróttastarfsemi, rannsóknir og ráðgjöf.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Félagsráðgjöf
Félagsráðgjöf er kennd við Háskóla Íslands. Viðfangsefni hennar er fyrst og fremst að leita úrræða fyrir þá sem lenda utanveltu í samfélaginu og hjálpa þeim til sjálfshjálpar. Meginmarkmiðið er að hver og einn geti notið sín sem best í eigin lífi. Meðal námsgreina í félagsráðgjöf eru almenn félagsráðgjöf, kenningar um mannlega hegðun, vinnulag í félagsrágjöf, fjölmenning og fagstörf. Félagsráðgjafar starfa aðallega við meðferð og þjónustu á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu og innan mennta- og dómskerfisins. Þeir starfa einnig að rannsóknum og fræðslu.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Fjölmiðlafræði
Fjölmiðlafræði er kennd við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Fjölmiðlafræðin fæst við stöðu fjölmiðla í samfélaginu, skipulag þeirra, notkun og áhrif þeirra á einstaka hópa. Meðal námsgreina eru kenningar og rannsóknir, margmiðlun og fjarskiptafræði, vald og formgerð fjölmiðla. Fjölmiðlafræðingar starfa m.a. við blaðamennsku, samskipti og upplýsingamiðlun.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Mannfræði
Mannfræði er kennd við Háskóla Íslands. Mannfræðin fjallar um manninn, bæði sem lífveru og félagsveru. Mannfræðin skiptist í tvö meginsvið, félags- eða menningarmannfræði annars vegar og líffræðilega mannfræði hins vegar. Meðal námsgreina eru mannfræðikenningar, aðferðafræði, vinnulag í mannfræði og þjóðfræði, trú og tákn, sifjar, mannfræði kynmenningar og mannfræði Íslendingasagna. Starfssvið mannfræðinga er fjölbreytt, allt frá skipulagningu og útfærslu þróunarverkefna hjá ólíkum stofnunum yfir í menningartengda ferðaþjónustu.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjöf er kennd við Háskóla Íslands. Námið miðar að því að undirbúa nemendur undir störf náms- og starfsráðgjafa í skólum og hjá fyrirtækjum í einkarekstri. Námið er tveggja ára nám. Meðal námsgreina eru skiplögð vinnubrögð í námi og starfi, viðtalstækni, persónulegir og félagslegir erfiðleikar nemenda og starfsþjálfun. Starfssvið náms- og starfsráðgjafa er ráðgjöf í skólum og fyrirtækjum.
| Fjöldi ára: 2 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Sálfræði
Sálfræði er kennd við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri.
Hugur og hátterni eru viðfangsefni sálfræðinnar. Hún skiptist í margar undirgreinar sem eiga það einkum sameiginlegt að beita tilraunum við rannsóknir. Greinin er fjölbreytt og geta nemendur valið sér ýmis sérsvið sálfræðinnar að loknu B.A.-prófi. Má þar nefna klíníska sálfræði, vinnusálfræði og skipulagssálfræði. Meðal skyldunámskeiða eru almenn sálfræði, aðferðafræði, lífeðlisleg sálfræði, tilraunasálfræði og saga sálfræðinnar. Sálfræðingar vinna m.a. fyrir heilbrigðis- og fræðsluyfirvöld en aðrir starfa sjálfstætt eða hjá einkafyrirtækjum við ráðgjöf, stjórnun og rannsóknir.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Stjórnmálafræði
Stjórnmálafræði er kennd við Háskóla Íslands. Viðfangsefni stjórnmálafræðinnar eru stjórnmál, hér heima og erlendis, í víðum skilningi, saga stjórnmálakerfa og uppbygging þeirra. Einnig þróa nemendur með sér skilning á því hvernig einstaklingar, flokkar, samtök og ríki taka ákvarðanir. Meðal námsgreina í stjórnmálafræði eru inngangur að stjórnmálafræði, íslenska stjórnkerfið, almenn félagsfræði, aðferðafræði og alþjóðastjórnmál.
Atvinnumöguleikar að loknu námi í stjórnmálafræði eru m.a. á sviði fjölmiðla, við ráðgjöf ýmiss konar, í alþjóðasamskiptum hjá utanríkisþjónustunni eða hjá einkaaðilum.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Þjóðfræði
Þjóðfræði er kennd við Háskóla Íslands. Þjóðfræðin fæst við rannsóknir á þjóðmenningu. Annars vegar er fjallað um menningu þjóðarinnar, arfleifð hennar og hugmyndafræði, líf einstaklinga, kosti þeirra og kjör. Hins vegar er einnig fjallað um þann fróðleik sem lifað hefur með hverri þjóð og orðið hluti af menningu hennar. Starfssvið þjóðfræðinga er m.a. á sviði fræðslu, rannsókna og fræðistarfa.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Guðfræði
Guðfræði
Guðfræði er kennd við Háskóla Íslands. Guðfræðinám til embættisprófs tekur að jafnaði fimm ár en einnig er hægt að ljúka B.A.-prófi í guðfræði á þremur árum. Meðal námsgreina í guðfræði eru gamlatestamentisfræði, nýjatestamentisfræði, trúfræði, siðfræði, kirkjusaga, og kennimannleg guðfræði. Að loknu námi í guðfræði eru ýmis störf í boði, s.s. prestur, djákni og fjölbreytt störf innan trúarfélaga.
| Fjöldi ára: 5 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Heilbrigðisvísindi
Geislafræði
Geislafræði er kennd við Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands. Ör þróun í myndtækni og aukin notkun myndgerðar í læknisfræði á undanförnum árum hefur gert það að verkum að starfssvið geislafræðinga hefur vaxið hratt. Meðal kennslugreina í geislafræði má nefna lífeðlisfræði, eðlisfræði, efnafræði,tölfræði, myndgerð, geislavarnir, rannsóknir, lyfjafræði, tækjafræði, umönnun sjúkra, sýklafræði,smitgát, sjúkdómafræði, skuggaefni, bráðaviðbrögð, verkleg rannsóknatækni og gæðastjórnun. Að loknu námi geta nemendur orðið fullgildir sérhæfðir starfsmenn myndgreiningastofnana og fyrirtækja þar sem starfað er með myndgerð í læknisfræði, við geislameðferð eða geislavarnir.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Hjúkrunarfræði
Hjúkrunarfræði er kennd við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Almennt grunnnám í hjúkrunarfræði er samtals 120 einingar, og lýkur með B.S.-prófi. Meðal helstu námsgreina eru lífeðlisfræði, sýkla- og ónæmisfræði, handlæknisfræði, hjúkrunarstjórnun, geðhjúkrun og öldrunarhjúkrun. Eftir nám getur þú fengið starf sem hjúkrunarfræðingur á sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum og einkastofnunum.
| Fjöldi ára: 4 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Lífeindafræði
Lífeindafræði (meinatækni) er kennd við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Meðal kennslugreina má nefna eðlisfræði, efnafræði, frumulíffræði, lífefnafræði, líffæra- og lífeðlisfræði, tækjafræði, meinefnafræði, blóðmeinafræði, sýklafræði og vefjameinafræði. Lífeindafræðingar starfa m.a. við þjónustu og grunnrannsóknir, bæði innan heilbrigðiskerfisins og hjá einkafyrirtækjum í lyfja- og líftækni, matvæla- og efnaiðnaði.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Lyfjafræði
Lyfjafræði er kennd við Háskóla Íslands. Aðgang að náminu hafa þeir sem lokið hafa stúdentsprófi frá stærðfræði-, náttúrufræði- og eðlisfræðideildum framhaldsskóla. Í lyfjafræði er fjallað um lyf og lyfjanotkun, allt frá efnafræði lyfja yfir í siðfræði og lyfjanotkun sjúklinga. Meðal námsgreina eru eðlisfræði, efnafræði, frumulíffræði, félagslyfjafræði, lífefnafræði og ónæmisfræði.
Eftir fimm ára nám í lyfjafræði má sækja um leyfi til heilbrigðisráðherra til þess að starfa við lyfsölu og reka apótek.
| Fjöldi ára: 5 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Læknisfræði
Læknisfræði er kennd við Háskóla Íslands. Almennt grunnnám í læknisfræði er fimm námsár. Eftir fjögur ár getur læknanemi hafið doktorsnám sem tekur mislangan tíma. Meðal námsgreina eru lífeðlisfræði, sýkla- og ónæmisfræði, handlæknisfræði, háls-, nef-, og eyrnasjúkdómafræði. Nám í læknisfræði býður upp á læknisstörf á sjúkrahúsum, heilsugæslustöðum og einkastofnunum.
| Fjöldi ára: 5 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Sjúkraþjálfun
Sjúkraþjálfun er kennd við Háskóla Íslands og lýkur með B.S.-prófi. Meðal námsgreina eru líffærafræði, lífeðlisfræði, þjálfunarfræði, meinafræði og siðfræði. Starfsmöguleikar sjúkraþjálfara eru fjölbreyttir og vinna þeir t.d. hjá íþróttafélögum, öldrunarstofnunum, endurhæfingarstofnunum, líkamsræktarstofum og einkastofnunum.
| Fjöldi ára: 4 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Tannlækningar
Tannlæknadeild veitir kennslu til kandídatsprófs í undirstöðugreinum tannlæknisfræðinnar. Fyrstu þrjú árin lesa nemendur undirstöðugreinar tannlæknisfræðinnar. Kennsla á fjórða, fimmta og sjötta ári er að mestu verkleg og fá nemendur þá haldgóða reynslu í meðhöndlun sjúklinga. Nemendum gefst einnig kostur á að læra um rannsóknaraðferðir.
| Fjöldi ára: 6 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Hugvísindi
Bókmenntafræði
Almenn bókmenntafræði er kennd við Háskóla Íslands. Námsleiðir geta verið misjafnar. Algengt er að blanda námi í almennri bókmenntafræði saman við tungumálanám. Námið felur í sér mikinn lestur bókmennta frá ýmsum tímabilum og ólíkum menningarsvæðum, auk fræðiefnis. Nemendur ráða miklu um áherslur í náminu. Á síðustu árum hafa menningarfræði og kvikmyndafræði einnig rutt sér til rúms innan almennrar bókmenntafræði. Bókmenntafræðingar starfa víða, t.d. við kennslu, fjölmiðla og útgáfustarfsemi.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Heimspeki
Heimspeki er þriggja ára nám sem er í boði við Háskóla Íslands. Meðal námsgreina innan heimspekinnar eru þekkingarfræði, siðfræði, rökfræði, bókmenntir og heimspeki, stjórnmálaheimspeki og um fræði einstakra heimspekinga. Starfsvettvangur heimspekinga er nokkuð fjölbreyttur og vinna þeir t.d. við kennslu, siðfræðirannsóknir og önnur fræðistörf.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Íslenska
Nám í íslensku er í boði við Háskóla Íslands. Nám í íslensku byggist á bókmenntum og málfræði þar sem fjallað er um íslenska tungu frá mörgum ólíkum sjónarhornum. Námið byggist á fyrirlestrum, æfingatímum og umræðum. Meðal námsgreina í íslensku eru t.d. málvísindi, bókmenntasaga, hljóðfræði, miðaldabókmenntir, samanburðarmálfræði, handritalestur, þjóðtrú og galdrar, samtímabókmenntir, nútímamálvísindi. Íslenskufræðingar vinna m.a. við textavinnslu, kennslu og fræðistörf.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Sagnfræði
Sagnfræði er kennd við Háskóla Íslands. Þar er fjallað um ólík samfélög, eins langt aftur í tíma og heimildir ná, ásamt sögu fólksins sem lifði í þessum samfélögum. Mikil áhersla er lögð á heimildavinnu og aðferðafræði. Meðal námsgreina eru aðferðafræði, Íslandssaga- og Norðurlandasaga, mannkynssaga, fortíðin í kvikmyndum, skjalasöfn og skjalavarsla, listasaga og heimildarýni. Sagnfræðingar starfa við fjölbreytt störf, svo sem kennslu, fjölmiðla og fræðistörf.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Tungumál
Tungumálanám til B.A.-prófs er 90 eininga, þriggja ára nám. Við Háskóla Íslands eru fjölmargar námsleiðir þar sem fjölmörg tungumál eru kennd: enska, franska, spænska, ítalska, latína, gríska, danska, norska, sænska, finnska og þýska. Nokkuð misjafnt er eftir námsleiðum og því tungumáli sem valið er hvaða námskeið eru í boði en almennt þurfa nemendur að læra málfræði, menningarsögu, bókmenntir, þýðingafræði og tjáningu. Þeir sem ljúka tungumálanámi geta t.d. unnið við þýðingar, samskipti við útlönd og kennslu.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Kennslufræði
Kennaranám
Kennaranám fer fram við Kennaraháskóla Íslands og Háskólann á Akureyri.
Við Kennaraháskóla Íslands eru fimm skorir: leikskólaskor, grunnskólaskor, framhaldskólaskor, íþróttaskor og þroskaþjálfaskor. Á Akureyri eru í boði tvær brautir: grunnskólabraut og leikskólabraut. Allar þessar leiðir eru þriggja ára nám og lýkur með B.Ed.-prófi. Helsta viðfangsefni kennaranámsins eru uppeldis og kennslufræði þar sem fengist er við það með hvaða hætti börn og unglingar læra og þroskast. Helsti starfsvettvangur er kennsla í grunnskólum.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Þroskaþjálfun
Þroskaþjálfun er kennd við Kennaraháskóla Íslands. Markmið með námi í þroskaþjálfaskor er að nemendur öðlist þekkingu og hæfni í starfi með fötluðum og lögð er áhersla á að tengja fræðilegt nám og hagnýta reynslu. Nemendur kynnast starfi þroskaþjálfa og aðstæðum fatlaðra í samfélaginu og á hverjum tíma er leitast við að kynna þeim nýjustu stefnur, strauma og rannsóknir í málaflokki fatlaðra. Starfsréttindi og starfsheiti þroskaþjálfa eru lögvernduð. Meðal námsgreina má nefna skapandi starf, inngang að uppeldisvísindum, þróunarsálfræði, smitsjúkdóma, taugasjúkdóma, tannfræði, en í síðari hluta námsins er lögð mest áhersla á vettvangsnám og skipulögð vinnubrögð. Starfssvið þroskaþjálfa er fyrst og fremst vinna með fötluðu fólki, ýmist börnum eða fullorðnum.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Listnám
Arkitektúr og hönnun
Boðið er upp á nám í arkitektúr, grafískri hönnun og vöruhönnun í Listaháskóla Íslands. Á fyrsta ári er námið almenns eðlis. Farið er yfir hönnunarferilinn og kennd hugmyndavinna, upplýsingatækni, skissugerð, tölvuvinna og ljósmyndun. Eftir því sem á námið líður beinist þekkingarleit nemandans frá því almenna til hins sérhæfðra og aðgreiningin í námsbrautir verður skýrari. Námið í Listaháskólanum er fyrst og fremst grunnur að framhaldsnámi við erlenda háskóla. Starfssvið hönnuða og arkitekta er ákaflega fjölbreytt og getur verið á sviðið hönnunar hinna ýmsu hluta, allt frá fatnaði til húsaþyrpinga.
| Fjöldi ára: 5 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Leiklistarnám
Leiklist er kennd í leiklistardeild Listaháskóla Íslands er 120 eininga nám til B.F.A.-gráðu. Námstími er
4 ár og lýkur náminu með þremur lokaverkefnum í nemendaleikhúsi og B.A.-ritgerð. Áhersla
er lögð á sjálfstæði nemandans í vinnu með það að markmiði að skerpa sýn hans á eigin
framvindu og vinnubrögð sem listamanns. Námið er blanda af verklegri þjálfun í leiklist og fræðilegri umfjöllun um leiklist, leikritun og túlkun leikverka. Meðal námsgreina eru : Alexandertækni, raddbeiting, hljóðmótun, líkamsþjálfun og söngur, leiklistarsaga, heimspeki og greining leikbókmennta.
Markmið nemendaleikhússins er að brúa bilið milli skólans og atvinnulífsins og gefa nemendum innsýn í rekstur leikhúss. Starf leikara er fyrst og fremst á sviði leikhúsa og kvikmynda, ýmist sem leikarar eða leikstjórar.
| Fjöldi ára: 4 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Myndlistarnám
Myndlist er kennd í myndlistardeild Listaháskóla Ísland og er þriggja ára nám til B.A.-gráðu. Námið skiptist milli listsköpunar og fræðigreina. Markmið námsins er að
nemendur tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð, auki þekkingu sína og skilning og rækti sjálfa
sig sem listamenn. Náminu lýkur með B.A.-verkefni sem felur í sér lokaverk, sem sýnt er á
útskriftarsýningu og lokaritgerð. Meðal námsgreina í myndlistardeild má nefna ýmsar aðferðir, ljósmyndun, tölvuvinnslu, tré- og járnsmíði, mótun, málun o.s.frv. Starf myndlistarmanna er ákaflega fjölbreytt, allt frá sjálfstæðri listsköpun yfir í kennslu og fræðistörf.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Tónlistarnám
Tónlistarnám er hægt að stunda við tónlistardeild Listaháskóla Íslands og er þriggja ára nám. Markmiðið er að nemendur tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð, auki þekkingu sína og færni og rækti sjálfa sig sem listamenn. Námið skiptist í þrjár brautir eftir aðalgrein nemandans: Hljóðfæraleikur eða söngur, með megináherslu á túlkun tónlistar, tónlistarfræði á almennri braut, með megináherslu á almennt tónlistarnám og tónlistarrannsóknir, tónsmíðar og nýmiðlar, þar sem mest er lagt upp úr tónsköpun, hvort sem er með hefðbundnum aðferðum eða aðferðum sem tengjast nýjum listmiðlum. Starf tónlistarmanna er fjölbreytt og snýst fyrst og fremst um flutning og túlkun tónlistar, ásamt kennslu.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Lögfræði
Lögfræði
Lögfræði er kennd við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Akureyri og Viðskiptaháskólann á Bifröst. Nám í lögfræði skiptist þannig að stúdentar ljúka fyrst ákveðnum einingafjölda í kjarnanámi og velja sér svo sérsvið. Meðal námsgreina eru almenn lögfræði, sifja- og erfðaréttur, viðskipta- og neytendaréttur, alþjóðlegar mannréttindareglur, einkaleyfi og hönnunarvernd, Evrópuréttur og fasteignakauparéttur. Lögfræðingur getur fengið störf víða, t.d. hjá hinu opinbera, hjá stærri fyrirtækjum eða einkastofum.
| Fjöldi ára: 5 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Raunvísindi
Eðlisfræði
Eðlisfræði er kennd til B.S.-prófs við Háskóla Íslands. Eðlisfræði fjallar um eðli, gerð og heðgun hlutanna í kringum okkur, allt frá minnstu frumeindum til endimarka alheimsins. Eðlisfræðin skiptist nokkuð niður í undirsvið og má þar nefna öreindafræði, kjarneðlisfræði, ljósfræði og jarðeðlisfræði. Meðal námskeiða í náminu eru mismunandi áfangar í eðlisfræði, aflfræði, rafsegulfræði, varmafræði, skammtafræði og öreindafræði. Meðal starfsmöguleika eðlisfræðinga má nefna kennslu, rannsóknir, m.a. á orkulindum og nýtingu þeirra, og þróun ýmiss konar.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Efnafræði
Efnafræði er kennd við Háskóla Íslands. Til þess að innritast í efnafræði er krafist stúdentsprófs af náttúrufræði- eða eðlisfræðibraut framhaldsskóla. Helstu viðfangsefni efnafræðinnar er eðli efnisheimsins, samsetning efna og möguleikar til framleiðslu nýrra efna. Meðal námsgreina eru lífræn efnafræði, eðlisefnafræði, hafefnafræði og lífefnafræði. Efnafræðingar vinna víða, svo sem við rannsóknir og kennslu við háskóla, hjá verkfræðistofum og á sviði líftækninnar.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Jarðfræði
Jarðfræði er kennd við Háskóla Íslands og fjallar um jörðina, myndun hennar og mótun. Námið er fjölbreytt og meðal sérsviða jarðfræðinnar má nefna eldfjallafræði, jarðhitafræði, jöklafræði og bergfræði. Meðal annarra námsgreina í B.S-námi eru steingervingafræði, hagnýt jarðfræði og haffræði. Jarðfræðingar koma gjarnan að rannsóknum sem lúta að nýtingu á auðlindum jarðar og undirbúningi mannvirkjagerðar. Jarðfræðingar vinna einnig við ýmis önnur störf og má þar nefna kennslu, rannsóknir og fræðistörf.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Landfræði
Landfræði er kennd við Háskóla Íslands. Landfræði er fjölbreytt fag sem fjallar m.a. um samspil manns og náttúru, landmótun ásamt gerð korta og landlíkana. Nemendur geta lagt áherslu á ákveðin svið landfræðinnar, eftir áhugasviði. Meðal námsgreina eru hagræn landfræði, kortagerð, landfræðileg upplýsingakerfi og svæðalandafræði. Störf landfræðinga endurspegla í raun fjölbreytni fagsins, en þeir vinna m.a. við gerð korta, hönnun og rekstur landfræðilegra upplýsingakerfa, náttúruvernd, ráðgjöf í umhverfis-, skipulags-, atvinnu- og samgöngumálum.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Líffræði
Líffræði er kennd við Háskóla Íslands. Til þess að innritast í líffræði er krafist stúdentsprófs af náttúrufræði- eða eðlisfræðibraut framhaldsskóla. Eftir fyrsta námsár þurfa nemendur að velja milli fjögurra námsbrauta, eftir því hvert hugur þeirra stefnir. Meðal námsgreina eru almenn líffræði, efnafræði og stærðfræði, dýrafræði, grasafræði, vatnalíffræði, frumulíffræði og atferlisfræði. Starfsvettvangur líffræðinga er fjölbreyttur og má m.a. nefna kennslu og rannsóknir ýmiss konar.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Matvælafræði
Matvæla- og næringarfræði er kennd við Háskóla Íslands.Nám í matvælafræði skiptist í fjögur svið: Matvælaverkfræði, matvælaefnafræði og matvælalíffræði og næringarfræði. Mikilvægi grunnrannsókna á matvælum og næringu fer vaxandi, m.a. vegna þess að sífellt koma nýjar vörur á markaðinn sem rannsaka þarf út frá lýðheilsu- og hollustusjónarmiðum. Meðal kennslugreina má nefna tölfræði, efnafræði, matvælaframleiðslu, frumulíffræði, eðlisefnafræði, efnagreiningartækni, lífefnafræði, matvælaefnafræði, matvælaverkfræði, næringarfræði og vöruþróun. Störf matvælafræðinga felast m.a. í rannsóknum og störfum í matvælaiðnaði við vöruþróun, eftirlit og framleiðslustýringu.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Sjávarútvegsfræði
Sjávarútvegsfræði er kennd við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands. Námið tekur 4 ár og lýkur með B.S.-prófi. Markmið námsins er eð mennta nemendur í undirstöðugreinum íslensks sjávarútvegs og þjálfa það í beitingu faglegra vinnubragða við stefnumörkun, ákvarðanatöku, stjórnun og rannsóknir. Meðal kennslugreina má nefna haf- og veðurfræði, líffræði, efnafræði, fiskeldi, sjávarlíffræði, fiskifræði, örveirufræði. Starfsmöguleikar þeirra sem útskrifast úr sjávarútvegsfræði eru helst á sviði stjórnunar og stefnumótunar í sjávarútvegi og rannsókna.
| Fjöldi ára: 4 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Stærðfræði
Stærðfræði er kennd við Háskóla Íslands. Nám í stærðfræði er 90 eininga, þriggja ára nám. Í boði eru fimm námsleiðir: stærðfræði með áherslu á reiknifræði, eðlisfræði, tölvunarfræði, líffræði eða hagfræði. Meðal námsgreina eru stærðfræðigreining, algebra og hnitarúmfræði, raunfallagreining, líkindareikningur og aðgerðagreining. Stærðfræðingum standa til boða ýmis störf s.s. kennsla, rannsóknir, og fræðistörf.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Tölvunarfræði
Tölvunarfræði er kennd við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Akureyri. Megináhersla er lögð á fræðilega undirstöðu greinarinnar í náminu og skipar stærðfræðin þar stóran sess þar sem hún undirstaða tölvunarfræðinnar. Nemendur þurfa þess vegna að hafa stúdentspróf af náttúru- eða eðlisfræðibraut í menntaskóla eða sambærilegt nám. Helstu þættir á námssviðinu eru forritun og hönnun, greining og hönnun hugbúnaðarkerfa, skipulagning gagnasafna og uppbygging tölva. Tölvunarfræðingar vinna við fjölbreytt störf innan upplýsingatæknigeirans, svo sem forritun, þróun og hönnun tölvukerfa, rekstur og stjórnun upplýsingakerfa, bæði hjá hinu opinbera og hjá einkafyrirtækjum.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Verkfræði
Verkfræði er kennd við Háskóla Ísland. Námið skiptist í þrjár skorir: umhverfis- og byggingaverkfræðiskor, rafmagns- og tölvuverkfræðiskor og véla- og iðnaðarverkfræðiskor. Nám á fyrsta ári er nánast það sama hjá öllum verkfræðinemum og er þá lögð áhersla á undirstöðugreinar eins og stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði, rekstrar- og tölvufræði. Eftir því sem líður á námið taka við sérgreinar sem eru mismunandi eftir því hvers kyns verkfræði er verið að læra. Gert er ráð fyrir að nemendur í verkfræði þurfi að ljúka tiltekinni starfsþjálfun í fyrirtæki eða hjá stofnunum. Að loknu meistaraprófi er hægt að sækja um til iðnaðarráðuneytisins og fá starfsheitið verkfræðingur. Starfssvið verkfræðinga er ákaflega fjölbreytilegt og fer að mestu eftir sérhæfingu í námi. Verkfræðingar starfa m.a. við hönnun mannvirkja, þróun tölvukerfa, við rekstur og stjórnun fyrirtækja svo eitthvað sé nefnt.
| Fjöldi ára: 5 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Viðskiptafræði
Hagfræði
Hægt er að læra hagfræði við Háskóla Íslands og lýkur náminu annaðhvort með BS eða BA gráðu. Meðal námsgreina í hagfræði til BS og BA eru rekstrarhagfræði, þjóðhagfræði, stærðfræði, tölfræði, reikningshald, alþjóðahagfræði og opinber fjármál. Hagfræðingar starfa m.a. hjá opinberum stofnunum og einkaaðilum. Einnig starfa margir hagfræðingar sem stjórnendur eða millistjórnendur hjá hinum ýmsu fyrirtækjum.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Viðskiptafræði
Hægt er að læra viðskiptafræði við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Viðskiptaháskólann á Bifröst og Háskólann á Akureyri. Nám í viðskiptafræði er ólíkt eftir skólum, námsleiðum og þeirri sérhæfingu sem nemandinn velur sér. Allir sem leggja stund á viðskiptafræði þurfa þó að læra ákveðnar grunngreinar eins og fjármál fyrirtækja, reikningshald, rekstrarhagfræði, stærðfræði, þjóðhagfræði og markaðsfræði. Viðskiptafræðingar vinna víða, bæði hjá opinberum stofnunum og einkaaðilum. Margir stjórnendur í viðskiptalífinu hafa lokið viðskiptafræðinámi.
| Fjöldi ára: 3 |
Forkröfur: Framhaldsskólanám |
|
Framhaldsnám